All tags
baunir
brauð
chili
drykkir
eftirréttir
fiskur
Gnocchi
grískt
hrísgrjón
icelandic
Ídýfur
Ís
kjúklingur
kökur
kvöldmatur
Lamb
Mexican
meðlæti
morgunmatur
nammi
pasta
pizza
pönnukökur
potato
skonsur
smákökur
sósur
súpur
Kjötsúpa
Kjötsúpan íslenska er ein næringarríkasta og bragðbesta máltið sem þú getur gert. Þetta er fullkominn matur á köldum degi eða þegar þú ert veikur en virkar raunverulega alltaf. Þessi súpa er alltaf gerð í minni fjölskyldu þegar tekið er á móti fólki sem er að koma til baka heim frá útlöndum.
Það eru ýmsar leiðir sem hægt er að fara við að gera súpuna og fer eftir fjölskylduhefð hvað er helst kosið. Ég kann best við hreinlegan vökva svo ég sleppin hrísgjónum og súpujurtum í pakka, en margir bæta því við ef súpan á að vera þykk og matarmikil.
Ingredients
Súpukjöt, mesta fitan skorin af 1 kgSalt 1 tsk
Svartur pipar 1 tsk
Kjúklingakraftur
Steinselja söxuð fersk 3 msk
Græn paprika, söxuð 0,5 stk
Blómkál, skorið gróft 0,25
Gulrætur, meðalstórar sneiddar 4 stk
Laukar, meðalstórir heilir 4 stk
Í sér potti
Gulrófa 500 gr
Kartöflur 5 stk
Vatn 2 L
Instructions
Byrjaðu á að setja kjötið í pott og hita að suðumarki. Taktu svo kjötið og settu í nýjan pott. Tilgangurinn með þessu er að taka burtu blóðið og önnur óhreinindi úr kjötinu áður en súpan er búin til.Settu nú kjötið í pott og og raðaðu lauknum heilum með.
Bættu blómkáli, gulrót, papriku, skessujurt, salt, pipar og kraftinum.
Hellið vatninu yfir og látið suðuna koma vel upp.
Látið allt malla saman við vægan hita í allavega 40-50 mínútur.
Skerðu rófur í stóra bita og settu með kartöflum í potti. Sjóða þar til mjúkt, eitthvað rétt undir klukkutíma. Blanda síðan saman við súpuna í lokin.