Syndsamleg súkkulaðikaka

Ingredients

Súkkulaði, dökkt 550 gr
Smjör, ósaltað 175 gr
Sykur 175 gr
Egg, aðskilin 6
Vanillu essens, eða dropar 2 tsk
Sýróp, ljóst 150 ml
Rjómi 150 ml

Instructions

Ofn hitaður í 180°.
300gr súkkulaði sett í pott ásamt smjörinu og brætt við
vægan hita og síðan tekið af hitanum og látið kólna nokkuð.
Hrært oft á meðan blandan er að kólna.

Eggjarauður þeyttar mjög vel með helming af sykrinum og
síðan er súkkulaðiblöndunni hrært saman við með sleikju
ásamt vanilluessens.

Eggjahvítur þeyttar þar til þær eru hálfstífar, afgangnum af
sykrinum blandað saman við smátt og smátt, þeytt þar til
hvíturnar mynda stífa toppa. Blandað gætilega saman við
deigið með sleikju.

Hellt í smurt og pappírsklætt kökuform og bakað í u.þ.b. 45
mín eða þar til kakan hefur lyft sér vel og prjónn sem stungið
er í hana miðja kemur nærri hreinn út.

Þá er kakan tekin út og kæld á grind en ekki tekin úr forminu
fyrr en hún er orðin köld. Hún fellur í miðjunni en það er
eðlilegt.

Sýróp og rjómi sett í pott, hitað að suðu og hrært vel. Tekið af
hitanum, afgangnum af súkkulanu skorið í smá bita og
blandað saman við. Hrært þar til súkkulaðið er bráðið.
Kreminu hellt á kökuna og hún kæld þar kremið er orðið stíft.