All tags
baunir
brauð
chili
drykkir
eftirréttir
fiskur
Gnocchi
grískt
heilsunammi
hrísgrjón
Ídýfur
Ís
íslenskt
ítalskt
kjúklingur
kökur
kvöldmatur
Lamb
Mexican
meðlæti
morgunmatur
nammi
pasta
pizza
pönnukökur
potato
pumpkin
risotto
skonsur
smákökur
sósur
súpur
Sveitabrauð
Ingredients
800 g óbleikt sterkt hveiti200 g gróft heilhveiti
1 matskeið þurrger (instant)
1 matskeið salt
2 matskeiðar ólífuolía
2 matskeiðar óunnið hveitiklíð (valfrjálst)
600 ml volgt vatn
Instructions
Notið rafmagnshrærivél með deigkrók og blandið og hnoðið öll hráefnin á lægsta hraða þar til deigið er slétt en ekki klístrað. Þetta tekur um 10 mínútur í vél, en tvöfalt lengri tíma ef hnoðað er í höndunum.Skiptið deiginu í tvennt og setjið hvorn helming í létt olíuborna skál. Hyljið skálarnar með viskustykki og látið standa á trekklausum stað þar til deigið hefur tvöfaldast að stærð (um 1 klst).
Setjið deigið á vinnuborð, þrýstið loftinu úr og hnoðið hvorn hluta í nokkrar mínútur. Látið hefast aftur, hulið með þurru viskustykki.
Mótið hvern hluta í brauðhleif sem líkist gildum vindli. Setjið hleifana á vel hveitistráð hreint viskustykki og látið hefast aftur í 30 mínútur.
Hitið ofninn í 220°C með þungri bökunarplötu inni í honum. Færið hvern hleif yfir á heita bökunarplötuna. Bakið í um 20 mínútur, snúið síðan brauðunum við og bakið í 5 mínútur til viðbótar.
Bankið í botn hvers hleifs og takið úr ofninum ef hann hljómar holur. Látið kólna alveg á grind áður en skorið er í hann.