Hrísgrjónagrautur

Ingredients

125 g hrísgrjón (1 1/2 dl)
2 dl vatn
ca 8 dl nýmjólk
1/2 tsk salt
1-2 tsk sykur ef vill
smjörklípa ef vill

Instructions

Suðan látin koma upp á grjónum og vatni. Mjólkinni bætt út í nokkrum skömmtum.
Gætið að því að hafa mjög vægan hita undir pottinum, annars vill allt brenna við.

Látið malla í a.mk. 1 klst. þannig að grauturinn seyðist og grjónin verði mjúk.
Saltað og sykrað eftir smekk. Að síðustu er smá smjörklípu bætt út í ef vill.

Borin fram með berjasaft, rjóma eða maukuðum ávöxtum. Kanilsykri dreift yfir.

http://www.leidbeiningastod.is/index.php/uppskriftasafn/item/hrisgrjonagrautur
Kvöldmatur · Hrísgrjón